Hlynur farinn, og ég orðin grasekkjaTinna Borg Arnfinnsdóttir
Jæja þá er Hlynur farinn á Akureyri að vinna, og mér finnst það heldur sárt.Hann verður fyrir norðan í allavega þrjár vikur sem mér finnst bara allt of mikið!!

En ætli maður kíki ekki á drenginn fyrir norðan einhverja helgina.
Það er nú ekkert merkilegt að gerast hjá mér eins og er, Karen vinkona kom í mat í gær! sem var voða gaman og svo verður skvísu hittingur fljótlega!! hjá okkur dale stelpunum! ég ætla mér að skipuleggja það um helgina (kannski byrja ég bara á morgun), og svo kannski maður kíki eitthvað í Ikea um helgina og svo þarf ég að kaupa mér úlpu fyrir veturinn og ætla að byrja að skoða mig um núna, því einhverstaðar þarf maður að byrjar! úff og þetta getur líka verið dýrt svo hugsanlega þarf maður að safna! En ég sé til kannski lendi ég á æðislegum díl.
Við fórum á Súðavík um seinustu helgi og það var alveg æðislegt veður og mín er komin með "wedding ring tan line" eða eins og ég myndi segja á íslensku far eftir hringinn, en mér finnst það bara ekki eins skemmtilegt.
Nú sit ég hér í vinnunni og er á leiðinni smá laugaveg með henni Silju minni, og hún sendi mér sms í þessum skrifuðu orðum! og ég er farin í mat!
later!
Komin heim eftir æðislega ferð á SúðavíkTinna Borg Arnfinnsdóttir
Við Hlynur skelltum okkur á Súðavík um helgina, í hina árlegu fjölskylduferð systkina hans pabba (og þeirra fjölskyldna að sjálfsögðu).Í ár var hún haldin á Súðavík, þar sem Baldur og Ragna áttu heima. Ég er búin að hlakka til í allt sumar að fara í þessa ferð og hún stóð sko sannarlega undir væntingum.
Það var smá hringa vitleysa til að byrja með um hvort tækist að redda fríi fyrir Hlyn, en það tókst á endanum og allir voru glaðir og sáttir :)
Á föstudaginn fór Hlynur að vinna og ég gerði farangurinn tilbúinn og Martinn (bretinn sem var í heimsókn) hjálpaði mér að bera út í bíl, um 11 leytið var allt tilbúið ég skellti mér í ríkið, skutlaði Martin niður á BSÍ, því hann ætlaði að taka flugrútuna heim, og síðan lagði ég í hann upp á Akranes þar sem Hlynur var að vinna.
Ég var komni á skagann rétt fyrir eitt og þá var Hlynur alveg að verða búin að vinna, eftir að við höfðum skellt í okkur einni pulsu og teipað bílinn, héldum við af stað á Vestfirði.
Vestfirðir eru mjög langt í burtu get ég sagt ykkur, og eftir 5 tíma keyrslu frá Akranesi (að mig minnir kannski voru það 6) komumst við loksins á Súðavík. Við keyrðum fjörð eftir fjörð, og í langan tíma sögðum við "jæja, þegar við keyrum fyrir fjallið inní næsta fjörð hljótum við að sjá Súðavík" en alltaf höfðum við jafn rangt fyrir okkur, þangað til að sjálfsögðu við keyrðum inní fjörðinn sem Súðavík stendur í, það var mikil gleðistund. Ekki aðeins vegna þess að þá var keyrslunni lokið heldur líka vegna þess að þar var fjölskyldan mín og glampandi sólskyn, ekki slæmar móttökurnar á þeim bænum.
Við gistum í gömlu heilsugæslunni, við erum orðin svo mörg að það var hreinlega ekki pláss fyrir okkur í einu húsi svo við vorum með 3, á laugardagskvöldinu fengum við síðan félagsheimilið lánað og borðuðum mat öll saman og dönsuðum hóp-dansa. Þar var drukkið dansað og hlegið og allir (leyfi ég mér að fullyrða) skemmtu sér konunglega :), á laugardeginum kíktum við á Ísafjörð og fengum heldur misheppnaða hamborgara, en himneskar ostabrauðstangir, við rendum síðan inná Bolungarvík á markaðsdaga, en keyrðum fljótt í burtu aftur þar sem við fundum ekki mikið sem okkur heillaði þar. Þegar við komum heim fórum við síðan í ratleik að hætti mömmu og mér skilst eftir áræðanlegum heimildum að ég hafi verið í 2.sæti
Á sunnudags "morgun" um 11 leytið skriðum við síðan framúr og röltum yfir til foreldra minna, sem sváfu í öðru húsi, og það komu upp blendnar tilfinningar þegar við löbbuðum út í 20 stiga hita, ég var glöð yfir góða veðrinu, en á sama tíma leið yfir að geta ekki notið þess allan daginn, við fundum samt ágætan milliveg og sleiktum sólina til 2 og þá lögðum við í hann í bæinn. Við þurftum nú samt ekki að keyra í mikilli sól allan tímann, sem var ágætt, og eftir því sem nær dró Reykjavík því svalara varð og "grárra" og þegar við vorum að renna inní Mosfellsbæ býður höfuðborgin okkur velkomin með ágætri rigningar slettu... sem var... hressandi. Sú rigning entist þó ekkert voðalega lengi og var í raun svo smávægileg að það tekur því varla að minnast á hana!
um kvöldið rifum við síðan teipið af bílnum og ég skreið dauðþreytt upp í rúm rétt fyrir 12 og sofnaði - med det samme-
en þetta er orðin meira en allt of langt svo ég sendi ykkur góða strauma útí sumarið :*
Blogg í dag?Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Ég er búin að hugsa um að blogga lengi, en hef í rauninni ekki mikið af mér að segja, en ég get nú ekki látið það fréttast að ég hafi ekkert bloggað í júní.Ástæðan fyrir þessu blogg leysi er í rauninni aðeins sú að tíminn hefur liðið svo hratt að ég hef steingleymt að blogga, sem er ekki alveg í góðu lagi :/ eða hvað? Er fólk þá kannski voðalega spennt að lesa þetta blogg? Ég er að hugsa um að setja mér þá reglu að blogga alltaf einu sinni í viku (a.m.k), allavega þangað til skólinn byrjar til að stytta mér stundir.
Ég er búin að þræða internetið í bak og fyrir og finnst ég nánast búin með það, fréttir af því að Michel Jacson sé dáinn (eða kannski ekki), kreppunni og airbus flugvélum tröllríða öllum fréttamiðlum. En talandi um airbus vélar og bara flugslys yfir höfuð þá finnst mér þetta orðið full mikið og frekar óhugnalegt, allt of mikið af flugslysum, og mikið af frökkum sem hafa dáið í þessum slysum, alveg hræðilegt.
Sumarið er búið að vera gott enn sem komið er. Þó það verði lítið um ferðalög hjá okkur skötuhjúunum í sumar hugsa ég að sumarið eigi eftir að líða hjá, er pínu hrædd um að júlí verði lengi að líða því ég mun vera svo mikið ein í vinnunni, en ég finn mér eitthvað skemmtilegt að gera og hlakka til í hverri viku, hver er til að gera eitthvað skemmtilegt með mér a.m.k. einu sinni í viku fram í september, því þá hef ég hugsað mér að leggjast í námsmannadvala og vera dúúleg!!
Ég hugsa að þetta sé orðið ágætt í bili, ég kem með eitthvað djúsí og spennandi næst.
Þangað til næst
NAUH!!Tinna Borg Arnfinnsdóttir
NAU NAU!! Það kom inn bloggið síðan fyrir 3 dögum! en það birtist bara í dag :) endilega lesið seinustu tvö blogg :) þó sumar upplýsingar komi tvisvar fram :)
Hvað er að frétta?Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Það er voða gott að frétta af mér núna, ég reyndi að blogga aðeins um daginn en það bara hvarf svo ég játaði mig sigraða og fór að sofa það kvöldið.
Nú er ég útsofin, og tilbúin í slaginn við bloggið.
Það er nú samt ekkert merkilegt sem ég ætla að skrifa, svo enska máltækið "pick your battles" á kannski vel við hér :)
Ég er byrjuð að vinna, ég verð hér í Landsbankanum fram í ágúst.
Ég er búin að fá tvær einkunnir 6 og 8!! takk fyrir voða kát með það, blessaða verkefnið er alveg að verða búið ég sé fyrir endann á því og þvílíkur dýrðar endir!!
Uppstigningadagur á morgun sem þýðir frí, mikið er nú gott að hugsa til þess að ég geti sofið út á morgun :)
Ég vona að veðrið á morgun verði eins og það er búið að vera seinustu daga! mér hefur liðið eins og ég búi á spáni! sól sól sól! vaknar og labbar út í sólina á morgnanna labbar út í sólina að vinnudegi loknum og hefur sólina langt fram eftir kvöldi (það er reyndar sér íslenskt). Yndislegt veður alveg hreint!! Sumarið er tíminn!
þangað til næst
Lítið að gerast!Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Jæja það er kannski ágætt að maður fari aðeins að láta heyra í sér.Ég er komin með vinnu upp í landsbanka, og er búin að vinna þar eina viku og er voðalega ánægð þar.
Ég er ekki alveg búin með allt í skólanum, var í smá einingavandræðum svo ég fékk 4 einingar verkefni sem ég er að berjast við að klára núna sem fyrst.
Einkunnir fyrir tvo áfanga eru komnar og ég fékk 6 og 8 og ég er himinlifandi með það, við fáum einkunnir úr seinasta áfanganum einhvern tíman í lok maí svo það styttist í þetta :)
En ég ætlaði bara að láta vita að ég er enn á lífi og ég kem með innihaldsríkt og skemmtilegt blog um leið og ég er búin með þetta blessaða verkefni!!
Njótið góða veðursins í dag
Komin á lappir :)Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Jæja loksins held ég að ég sé búin að losa mig við þessa helv**** pest!Nú er komið að prófum líka, svo það verður mikið að gera næstu vikurnar og svo er komið sumarfrí :)
eða sumarvinna :)
ég er síðan búin að skrá mig í sálfræði í haust, hlakka svolítið til að byrja. Það var rosalega erfitt að velja á milli, en svona er þetta bara.
Við Hlynur erum búin að ákveða dagsetningu fyrir brúðkaupið okkar :)
við ætlum að gifta okkur 7.september 2013 :) það eru 4 ár þangað til, við ætlum að safna þangað til í rólegheitunum.
Dagsetningin okkar verður þá 07.09.13 :)
Þetta hefur líka svolítið að gera með einkahúmor, vegna þess að ég hélt því fram að þessi dagsetning væri ekki til.
Því mér fannst endilega eins og 13 í þessari dagsetningu væri mánuðurinn og þá þyrftum við að bæta við heilum mánuði í árið
það tók mig smá tíma að fatta þetta, en þegar ég áttaði mig á þessu öllu saman, og þegar við trúlofuðum okkur, tók ég fljótlega eftir því að þetta var laugardagur, svo við ákváðum á skella okkur bara á þá dagsetningu :) En ég ætti að vera að lesa svo ég ætla að fara í það núna vildi bara láta vita af mér :)
miðvikudagurinn 18.mars 2009Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Lífið er gott!Ég sit hér og er að borða kartöflugratín með piparosti, rjóma og osti, og að sjálfsögðu kartöflum líka.
Hlynur er búinn að vera að dunda í bílnum og setja nýja hátalara og einangra hurðarnar svo hljómurinn verði betri, og við byrjuðum daginn á því að setjast inní bíl og Hlynur leyfði mér að heyra muninn sem var svakalegur!
Ég fór síðan inn aftur og fór og setja myndirnar úr afmælinu inná netið, og þetta er ekkert smá mikið! rúmlega 200 myndir og mikið er gaman að eiga svona mikið af myndum.
Ég er reyndar orðin alveg rosalega slöpp og er pínulítið hrædd um að ég sé að verða veik, en ég ætla ekki að verða veik, svo í staðinn fyrir að skríða upp í rúm, ákvað ég að þrífa eldhússkápana!
Þvílíkur munur! pláss fyrir allt og ekki of mikið af morgunkorni og ég er ótrúlega ánægð með mig.
Nú er ég reyndar að hugsa um að setjast í sófann og undir sæng og horfa á smá simpsons og taka því rólega.
Tvítug og trúlofuð! 9.mars 2009Tinna Borg Arnfinnsdóttir
Ji minn eini!Seinasti sólarhringur hefur einkennst af mikilli gleði á þessu heimili!!
í gær morgun vaknaði ég við það að síminn minn hringdi.
það var númerið hans pabbi.
Ég svarði í símann ennþá soldið þreytt, en hafði á tilfinningunni hvað myndi taka á móti mér þegar ég svaraði, og þess vegna varð mér rosalega hlýtt í hjartanu þegar ég fékk þann grun minn staðfestan.
,,hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag..." sungu pabbi og litlu systkini mín tvö í innilega fallegri og krúttílegri harmóníu :)
mamma þín er í sturtu hún hringir eftir smá :) sagði pabbi þegar afmælissöngurinn var búinn og þau þrjú höfðu rætt aðeins við mig um hvernig tilfinningin væri að vera orðin tvítug!
Það stóð heima! mamma hringdi 7 mín seinna eða svo og óskaði mér til hamingju með afmælið :)
Ég átti ekki að mæta í tíma þennan daginn, svo ég leyfði mér að bara að sofna aftur þegar ég var búin að tala við mömmu :) það var rosalega gott :)
Um 10 leytið gat ég svo ekki sofið lengur, ég kíkti á facebook og afmælisóskunum hreinlega rigndi inn :) og ég vil nota tækifærið til að þakka öllum fyrir fallegar kveðjur í gær :)
ég skellti mér í föt og fór í kringluna til að kaupa það sem þurfti í rjómaterturnar sem slógu rækilega í gegn seinna um daginn og kláruðust alveg!! Ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér!!
þegar ég kom heim fór ég beint að laga til og gera svampbotnana tilbúna. Ég bauð nefninleg nánustu fjölskyldu í kökur í gær.
Hlynur var á þönum yfir daginn, með þeim skýringum að hann væri að skoða og að gera tilboð í verk (ef ég bara hefði vitað). Ég var heima að þrífa og laga til og Hlynur kom og hjálpaði til á milli þess sem hann skaust við og við í "vinnuna"
um þrjúleytið kom Hlynur heim , hann var voðalega glaður að sjá mig og ég skrifaði það á kökurnar og rjómann því ég var öll út í rjóma og við það að blanda jarðaberjunum út í rjómann (sem er óstjórnlega girnilegt) og voðalega mikil húsmóðir.
,,Komdu aðeins" segir hann og leiðir mig inn í herbergi, þar knúsar hann mig meira og ég stóð mig að því að hugsa, ,,ég þarf að baka oftar rjómaköku hann verður alveg rosalega rómantískur, og þær eru ekki einu sinni tilbúnar ennþá"
Hann minnir mig á þegar hann sagði að þegar ég yrði tvítug þá skildi hann biðja mín. Hann kyssir mig á ennið og segir svo ,,Tinna viltu þá giftast mér?" ég fór að hágráta!! og rétt náði að koma orðunum út úr mér. ,,Já!! ég elska þig! já" þegar ég var að ná andanum aftur, dregur hann upp hringabox. Ég grét ennþá meira og titraði svo mikið að ég gat ekki opnað boxið strax, ég náði fljótlega upp styrk til að opna boxið og mér heilsa tveir gullhringar annar stór og hinn lítill. Ég veit ekki hvort þið trúið því en þá grét ég ennþá meira. ,,Kíktu inní þá" sagði Hlynur, ég leit inní minni hringinn og inní hann var grafið ,,þinn Hlynur" inní stærri hringnum stóð ,,þín Tinna" ég vissi ekki hvernig ég átti að vera. Það eina sem ég hugsaði var, ,,hann vill giftast mér! hann vill eyða lífinu með mér! hann vill að allir viti að hann elskar mig!" Ég var (og er ennþá þegar þetta er skrifað) í skýjunum!
Ég grét af gleði í u.þ.b klukkutíma á eftir og ég hætti ekki að titra fyrr en einhvern tíman um kvöldið
Ég verð meira að segja klökk við að skrifa þetta núna.
Öll nánasta fjölskyldan okkar kom svo í kaffi rétt eftir að ég var búin að jafna mig (ef svo má segja) og fengu fréttirnar af þessu öllu saman.
Mamma og pabbi vissu þetta reyndar, því Hlynur bað um leyfi hjá pabba áður en hann bar upp bónorðið!
Dagurinn í gær, var því fullkominn og ég er gjörsamlega í skýjunum!! Ég á ekki til eitt aukatekið orð!! Ég er svo ástfangin af honum og svo þakklát fyrir að hann sé minn!!
Það er líka ólýsanleg tilfinning að sjá hringinn á fingrinum hans. Ég horfi á hringinn hans og ég sé ekki bara, að hann sé frátekinn, ég sé loforðið og skuldbindinguna, að hann sé minn, og vilji vera minn það sem eftir er, og nú er ég farin að tárast :)
Mig langar enn og aftur að þakka öllum fyrir æðislegar kveðjur í gær, og fjölskyldunum okkar Hlyns fyrir að koma og deila þessum fallega degi með okkur :)
Hlynur ég elska þig :*
fyrsta og siðasta febrúarbloggið þetta áriðTinna Borg Arnfinnsdóttir
Jæja hér er eitt blogg svona áður en febrúar klárast :)fréttir: mér líkar rosalega vel í félagsráðgjöfinni en það er ekkert ákveðið enn varðandi næsta haust, hvort ég fari í sálfræði eða haldi bara áfram í félagsráðgjöfinni.
á döfinni: ég á afmæli eftir 10 daga!! og þá á ég sko stórafmæli!! stelpan er að verða tvítug!!!
pabbi varð fertugur á þriðjudaginn og þess vegna ætlum við bara að slá upp í eina stóra veislu fyrir fjölskylduna sem verður á morgun og ég hlakka svo mikið til að ég er gjörsamlega að fara yfir um!!
Ég ætla að enda bloggið á léttu nótunum, með lista sem ég fann á netinu áðan.
Eins og allir vita er allt sem stendur á netinu satt, sérstaklega þegar um sjálfspróf er að ræða, þar sem þú setur x í þrjá kassa og þú færð að vita hversu mörg börn þú munt eignast, hvenær þú giftir þig og að Brad Pitt sé eiginmaður þinn því þú ert raunverulega Angelina Jolie, þú varst hestur í fyrralífi, og í næsta lífi muntu líklega vera býfluga! Brad pitt mun að sjálfsögðu fylgja þér allt sem þú ferð, en aðeins ef þú hefur tekið prófið “ertu góð kærasta” og komið vel út úr því. Annar situr þú uppi með Lalla Jones. Það er því mikilvægt að gera allt sem þessi sjálfspróf segja þér að gera, að þú takir mark á þeim og fyrir alla muni ekki gera mistök!! Því þá veit enginn hvað getur gerst!
Svo hér læt ég fylgja með skemmtilegan lista sem er stafrófið, en fyrir aftan hvern staf er hin "raunverulega merking" stafsins, síðan myndaru nafnið þitt úr stöfunum í stafrófinu og þá er komin upp fín lýsing á þeirri manneskju sem þú raunverulega ert, en bara veist ekki ennþá, og munt kannski aldri hafa komist af ef ekki væri fyrir þennan lista.
T : You're loyal to those you love.
I : People Adore you
N : You like to drink.
N : You like to drink.
A : You like to drink.
B : You like people.
O: Awesome kisser.
R : Fuckin crazy.
G : You never let people tell you what to do.
A : You like to drink.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Damn good kisser.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You have a very good personality and looks.
I : People Adore you
J : You are great in bed.
K : You're wild and crazy.
L: Everyone loves you
M : You are great in bed.
N : You like to drink.
O: Awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgemental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : Best g/f b/f anyone could ever ask for.
Z : Always ready
Það sem ég dreg út úr þessu er að ég er kolbrjáluður alkahólisti! Ég læt fólk ekki segja mér hvað ég á að gera, og held líklegast bara áfram að drekka, ég er traust, en hver vill hafa Tinnu “frænku” sem drekkur svo mikið í heimsókn alla daga?
En samt einhverra óskiljanlegra hluta vegna dáir fólk mig.. :/ svo þið kæru vinir eruð samkvæmt þessu líka kol klikkuð fyrir aðeins það eitt að geta umgengist mig og öll mín vandamál
Heppin ég að hafa fundið þetta á netinu, hver veit hvar ég hefði endað ef ég hefði ekki fengið að vita þetta strax.
